Þetta eru best klæddu konur Íslands

Lesendur Smartlands völdu best klæddu konur landsins.
Lesendur Smartlands völdu best klæddu konur landsins. Ljósmynd/Samsett

Ísland er fullt af fallega klæddum konum. Lesendur Smartlands völdu þær allra smekklegustu þegar kemur að klæðaburði. Í framhaldinu voru þessar best klæddu teknar tali og deila þær hugmyndafræði sinni þegar kemur að því að raða fötum þannig að heildarmyndin verði góð. 

Edda Guðrún Andrésdóttir.
Edda Guðrún Andrésdóttir.

Edda Guðrún Andrésdóttir fréttaþulur

„Aðalatriðið er að föt séu þægileg, í takti við mann sjálfan og ekki of þröng. Annars er þetta einfalt hjá mér. Skyrta, rúllukragapeysa og góður jakki og þá er ég í góðum gír!

Sigríður Helga Gunnarsdóttir.
Sigríður Helga Gunnarsdóttir.

Sigríður Helga Gunnarsdóttir sérfræðingur

„Ég myndi segja aðalatriðið að líða vel í fötunum. Ég hef alltaf verið fatakona og hef óskaplega gaman af því að fylgjast með tískunni. Einu sinni gat maður nánast farið í allt en
með aldrinum þá er bara ýmislegt sem fer yngri stúlkum og konum betur svo það þarf að velja úr hvað hentar manni. Það er svo margt smart í tískunni sem hægt er að pikka út sem er unglegt og ferskt en samt ekki eins og þú sért í samkeppni við ungu stúlkurnar. Litir og
munstur gera miklu meira fyrir mann á sextugsaldri, en svart og grátt. Við ættum eins ekki að vera hræddar við að blanda alls konar flíkum saman, enda er tíska ekkert háalvarlegt mál bara skemmtileg tjáning og það þarf ekkert öllum að finnast það sama flott. Aðalatriðið er
að þú kunnir vel við þig í fötunum. Aðrir skynja það og ert töff að mínu mati.“

Bára Hólmgeirsdóttir.
Bára Hólmgeirsdóttir.

Bára Hólmgeirsdóttir fatahönnuður

„Mér finnst mikilvægt að fylgja sínum stíl og að hlaupa ekki á eftir trendum. Einnig að huga að velferð jarðarinnar.“

Hildur Hafsteinsdóttir.
Hildur Hafsteinsdóttir.

Hildur Hafstein hönnuður

„Mestu máli skiptir klæðileg snið, þægindi og falleg efni og litir. Annars verða góðar gallabuxur oftast fyrir valinu hjá mér.“

Anna Margrét Jónsdóttir.
Anna Margrét Jónsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Anna Margrét Jónsdóttir ferðamálafrömuður

„Mestu máli skiptir að mínu mati flottir vandaðir skór og belti. Annars hefur peningur ekkert að gera með stíl, flottast er að vera eins og manni líður best. Þá er maður töff. Ég er náttúrulega skósjúk og á allt of mörg skó pör og allt of margar yfirhafnir. Þetta er áhugamál hjá mér en í leiðinni veikleiki.“

Inga Lind Karlsdóttir.
Inga Lind Karlsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Inga Lind Karlsdóttir framleiðandi

„Það merki um bæði þroska og góðan smekk að klæða sig eftir veðri og aðstæðum.
Fatavalið fylgir klárlega tískustraumum að einhverju leyti en ég vil samt ekki klæðast fötum sem fara mér ekki vel bara af því þau eru „trendy“. Mér hefur reynst vel að velja flíkur úr vönduðum efnum sem endast vel. Sumt af því sem ég nota í dag, keypti ég jafnvel fyrir hrun.
Annars fæ ég oft einhver föt á heilann og klæðist fáu öðru en akkúrat þeim yfir ákveðinn tíma. Núna er ég til dæmis með svartan ullarsamfesting á heilanum. Er í honum daginn langan, alsæl og ekkert kalt, sama hvort ég er úti í tökum, leikhúsi eða bara heima. Kannski er ég að verða eins og Churchill. Hann var alltaf í samfestingi. Enda smekkmaður. Svo virðist ég hafa minni þolinmæði fyrir háum hælum eftir því sem ég eldist og fagna til dæmis stígvélum með lágum hæl en helst þó öllum þessum þúsundum af fallegum strigaskóm sem eru komnir á markaðinn.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Ljósmynd/ Haraldur Guðjónsson Thors

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra

„Ég er með heldur vesenslausan eða afslappaðan stíl. Ég klæði mig svolítið eftir skapinu sem ég er í. Mér finnst skipta máli að máta flíkur við vaxtalag og karakter. Þá reyni ég ekki að klæðast flíkum sem fara mér ekki þótt þær séu töff á öðrum. Annars er þetta ekki mjög úthugsað. Ég sé Dísulegar flíkur og vel þær. Hef aukið töluvert val á íslenskri hönnun enda framboðið meiri háttar og gaman að klæðast henni.“

Marta Nordal.
Marta Nordal. Ljósmynd/Auðunn Níelsson

Marta Nordal leikhússtjóri

„Mér finnst aðalatriðið að velja föt sem klæða mann vel og draga fram það besta á líkamanum. Ekki elta tískustrauma í blindni sem hugsanlega passa manni ekki eða vera í sniðlausum fötum sem hanga afstöðulaus utan á skrokknum. Bara einhverjar brjóstalausar mjónur geta púllað slíkt en venjulegar konur eins og ég verða eins og tunnur. Ég vel alltaf föt sem eru „tailored“ eða undirstrika línurnar án þess að vera þröng því of þröng föt eru ekki sérstaklega klæðileg á miðaldra konum. Ég nota mjög mikið „blazera“ því þeir teikna vel efri hlutann og gefa skemmtilegt viðhorf, svo er ég hrifin af beltum, flottum blússum, stuttum pilsum, gallabuxum og hælaskóm, svona „french chic“. Mér þykir mikilvægt að vera alltaf í vönduðum skóm og með vel hirt hár. Alveg sama hversu fínt þú ert klædd þá geta ljótir og ódýrir skór eða slitið og þurrt hár eyðilagt heildarútlitið. Svo má skreyta með flottum fylgihlutum og töskum. Ég legg líka áherslu á að kaupa frekar vönduð hversdagsföt heldur en eyða fúlgu í einhvern síðkjól sem þú ferð í einu sinni í á ári. Eyða meiru í það sem maður notar daglega enda er það mitt motto að hlutur er ekki dýr ef þú notar hann.“

GDRN.
GDRN.

Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir tónlistamaður
GDRN

„Það sem skiptir máli þegar kemur að fatavali er að vera óhræddur að tjá sig með fatnaðinum sem maður klæðist, og númer eitt, tvö og þrjú að klæðast því sem lætur manni líða vel.“

Gríma Björg Thorarensen.
Gríma Björg Thorarensen. mbl.is/Saga Sig

Gríma Björg Thorarensen innanhússhönnuður

„Það skiptir mig máli að velja föt með sniði sem passar mér vel og föt úr góðum efnum sem endast vel. Ég kaupi mér ekkert voðalega oft föt og vel að eiga færri og vönduð föt en fullan skáp af dóti sem ég nota aldrei.“

Lilja Pálmadóttir.
Lilja Pálmadóttir. mbl.is/Elísabet Halldórsdóttir

Lilja Sigurlín Pálmadóttir hrossabóndi 

„Að klæða sig snýst um að raða saman formum, litum og áferð. Bara eins og í allri listsköpun og hönnun.“

Dóra Júlía Agnarsdóttir.
Dóra Júlía Agnarsdóttir.

Dóra Júlía Agnarsdóttir plötusnúður

„Ég er alltaf samkvæm sjálfri mér í fatavali og hef ekki áhyggjur af því að falla inn í hópinn! Litagleði gerir mikið fyrir mig og mér finnst ótrúlega gaman að setja saman skemmtilegar flíkur í þessa listrænu heild sem fatnaðurinn skapar! Ég elska skemmtilega fylgihluti, skart, klúta og töskur sem poppa upp heildarútlitið!
Það skiptir mig langmestu máli að líða vel í fötunum og hafa gaman að því að dressa mig.“

Guðlaug Ingibjörg Bjarnadóttir.
Guðlaug Ingibjörg Bjarnadóttir.

Guðlaug Ingibjörg Bjarnadóttir sölufulltrúi

„Föt eru frá toppi til táar og mikilvægt er að klára „outfittið“ alla leið ekki bara fara í flottan kjól heldur leika skór, yfirhöfn og fylgihlutir mjög stórt hlutverk í því að fullkomna útlitið.“

Sólveig Þórarinsdóttir.
Sólveig Þórarinsdóttir.

Sólveig Þórarinsdóttir eigandi Sóla

„Hlutirnir eru afskaplega einfaldir mín megin, ég vel þægindi umfram allt þess vegna hafa kjólar og pils tekið yfir allt en fatnaðurinn þarf að endurspegla mína innri konu og vera birtingamynd þess sem mig langar að skína dag hvern.“

Elísabet Gunnarsdóttir.
Elísabet Gunnarsdóttir.

Elísabet Gunnarsdóttir bloggari Trendnet

„Það skiptir mestu máli að fylgja eigin sannfæringu og klæða sig í föt sem manni líður vel í frekar en að fylgja alltaf næsta manni eða trendum. Það er hægt að fá innblástur úr öllum áttum, ekki bara frá tískupöllum eða af bloggum eða samfélagsmiðlum. Líka með því að sitja á góðu horni með kaffibolla við hönd og fylgjast með mannlífinu, vel klæddir gamlir karlar geta alveg eins gefið mér innblástur og hin mesta parísar-skvísa.

Með aldrinum læri ég betur á eigin stíl og veit hvaða stefnum og straumum ég vil fylgja. Ég nota flíkur lengi og oft en dressa þær á mismunandi hátt eftir tilefnum. Fataval er góð leið til að túlka og skapa persónuleika og því finnst mér fólk eigi að vera óhrætt við að nýta sér það og leggja megináherslu á eigin vellíðan í klæðum.“

Birna Rún Gísladóttir.
Birna Rún Gísladóttir. mbl.is/Saga Sig

Birna Rún Gísladóttir viðskiptafræðingur

„Ásetningurinn um að manni líði vel í fötunum sama hvert tilefnið er og ekki er verra ef flíkurnar gleðja augað.“

Ragna Árnadóttir.
Ragna Árnadóttir.

Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Alþingis

„Að fötin klæði mig og að ég fíli þau, komi með smá auka orku inn í daginn eða kvöldið, fórna alveg pínu þægindum fyrir það stöku sinnum!“

Sara Lind Þrúðardóttir.
Sara Lind Þrúðardóttir.

Sara Lind Þrúðardóttir framkvæmdastjóri

„Það sem skiptir mig mestu máli eru gæði, góð hönnun og efni. Svo finnst mér alveg toppurinn ef flíkin á sér sögu og ég finn hana í „vintage“ búðum eða verslunum sem selja vandaðan notaðan tímabilsfatnað.“

Harpa Þórunn Pétursdóttir.
Harpa Þórunn Pétursdóttir.

Harpa Þórunn Pétursdóttir lögfræðingur

„Ég myndi segja að það væru miklar andstæður í mínum fatastíl, allt frá mikilli klassík yfir í rokkaðan stíl sem mér finnst líka gaman að blanda saman. Með aldrinum hef ég lært að meta gæðin meira og reyni að vanda valið við fatakaup frekar en að kaupa fleiri flíkur. Mér finnst líka mjög gaman að vera í einfaldari flíkum og nota aukahluti og skartgripi til að klæða þær upp eða niður.“

Helga Ólafsdóttir.
Helga Ólafsdóttir.

Helga Ólafsdóttir fatahönnuður

„Að eiga klassískar flíkur úr fallegum efnum og blanda þeim með einhverju óvæntu.“

Alma D. Möller.
Alma D. Möller.


 Alma D. Möller landlæknir

„Fötin þegar ég sinni mínu starfi þurfa að vera þægileg, sígild og stílhrein.“

Katrín Jakobsdóttir.
Katrín Jakobsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra

„Fyrir mig skiptir mestu máli að líða vel í því sem ég klæðist sem er nátengt því að líða vel í eigin skinni. Ég fer þá einföldu leið að eiga nóg af svörtum flíkum sem hægt er að nota með litum. Annars hef ég orðið æ minna spennandi í fatavali eftir því sem ég eldist og er þá minna flippuð!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál