Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, klæddist einstaklega smekklegri hvítri rúllukragapeysu í Kastljósi á Rúv í gærkvöldi. Peysan vakti athygli á mörgum heimilum en hún er frá merkinu JÖR.
Guðmundur Jörundsson, eigandi JÖR, staðfesti þetta þegar spurningar fóru að vakna á samfélagsmiðlum um peysuna sem Kári klæddist. Peysan fer Kára einstaklega vel en hann virðist vera hrifinn af rúllukragapeysum þessi misserin, enda kalt í veðri.
Einkennisklæðnaður Kára í upphafi heimsfaraldurs var þó án efa gallaskyrtan sem hann klæddist meðal annars í Kastljósi og þegar hann fór á fund í Stjórnarráðinu.