Söngdívan Mariah Carey er ein þeirra sem lét klippa sig í anda Rachelar í Vinum á sínum tíma. Klippingin sem var einfaldlega kölluð Rakelin eða The Rachel var gríðarlega vinsæl þegar vinsældir Vina voru sem mestar. Carey var ekki ánægð með sína klippingu.
Carey birti mynd af sér með hárgreiðsluna á samfélagsmiðlum sínum. Sagði hún að hárgreiðslan væri sorgleg tilraun til þess að herma eftir Rakelar-hárgreiðslunni. Ekki voru þó allir jafnósáttir við hárgreiðsluna og Carey. Jennifer Aniston sjálf var meðal þeirra sem skrifaði athugasemd við myndina. „Elska þetta,“ skrifaði Aniston.
Aniston greindi frá því fyrir nokkrum árum í viðtali við Glamour að hún hefði ekki verið aðdáandi hárgreiðslunnar. Það var íþyngjandi fyrir hana að þurfa alltaf að vera með hárgreiðslumanninn sinn við hlið sér. Sjálf var hún ekki lunkin með hárblásarann.