Dressin á Bankastræti ekki ódýr

Föt frá Hildi Yeoman voru vinsæl þegar opnunarpartí Bankastrætis fór …
Föt frá Hildi Yeoman voru vinsæl þegar opnunarpartí Bankastrætis fór fram á fimmtudaginn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenskir áhrifavaldar klæddust íslenskri hönnun þegar opnunarpartí skemmtistaðarins Bankastrætis fór fram í gærkvöldi. Skemmtistaðurinn verður opnaður formlega í kvöld. Brigitta Líf Björnsdóttir, Sunneva Eir Einarsdóttir, Ástrós Traustadóttir og Kristín Pétursdóttir voru meðal þeirra sem klæddust fötum frá Hildi Yeoman.

Áhrifavaldurinn og viðskiptafræðingurinn Sunneva Eir Einarsdóttir klæddist grænum glansandi toppi frá Hildi Yeoman og grænum buxum í stíl. Toppurinn kostar 29.900 og buxurnar 49.900. Samkvæmisdansarinn Ástrós Traustadóttir úr Allir geta dansað var í eins bol og Sunneva nema bláum. Við bláa bolinn var hún síðan í skærbláum buxum sem kosta 39.900 króur. 

Ástrós Traustadóttir sést hér í bláum glansandi topp frá Hildi …
Ástrós Traustadóttir sést hér í bláum glansandi topp frá Hildi Yeoman. Við hlið hennar er Arn­hild­ur Anna Árna­dótt­ir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Birgitta Líf Björnsdóttir rekur staðinn en hún klæddist bleikum kjól sem einnig er frá Hildi Yeoman. Bleiki kjólinn sem Birgitta Líf klæddist kostar 45.900 krónur. 

Birgitta Líf í bleikum kjól frá Hildi Yeoman.
Birgitta Líf í bleikum kjól frá Hildi Yeoman. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leikkonan Kristín Pétursdóttir var einnig mætt í kjól frá Hildi Yeoman. Kjóllinn hennar var ekki úr glansefni ólíkt fötum vinkvenna hennar. Svo virðist sem fötin hafi verið afar vinsæl meðal þeirra sem mættu í opnunarpartíið. 

Kristín Pétursdóttir í kjól frá Hildi Yeoman.
Kristín Pétursdóttir í kjól frá Hildi Yeoman. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Skvísulæti og föt frá Hildi Yeoman í opnunarpartí Bankastrætis.
Skvísulæti og föt frá Hildi Yeoman í opnunarpartí Bankastrætis. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál