Helga Margrét er með skvísulegan stíl

Helga Margrét er hrifin af baklausum kjólum. Þennan keypti hún …
Helga Margrét er hrifin af baklausum kjólum. Þennan keypti hún á góðum afslætti á Asos. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Helga Margrét Agnarsdóttir, lögfræðinemi, starfsmaður í Vero Moda og karókístjórnandi á Sæta svíninu, er með flottan fatastíl. Hún er alltaf fín til fara og oftar en ekki sker Helga Margrét sig úr fjöldanum á Íslandi.

Helga Margrét er með skvísulegan stíl en segir að hún myndi aldrei lýsa honum sem kúl eða töff. Hún elskar litríkan klæðnað og er óhrædd við að blanda saman gömlu og nýju. „Þið finnið mig oftast í stuttu pilsi og skyrtu, blússu eða rúllukragabol. Og síðast en ekki síst í fallegri kápu og hælaskóm. Það er svona mín uppskrift að hinu fullkomna dressi. Síðan vil ég helst alltaf vera í kjól þegar ég fer eitthvað út á lífið. Ég reyni að vera alltaf í ljósum og fallegum litum, alls ekki í dökkum eða gráum fötum. Hvítur, bleikur og fjólublár eru algengustu litirnir í fataskápunum mínum,“ segir Helga Margrét um fatastílinn sinn.

Haustið 2018 byrjaði ég að ganga í hvítum í lituðum …
Haustið 2018 byrjaði ég að ganga í hvítum í lituðum sokkabuxum. Jakkinn og pilsið eru úr TopShop en taskan frá Karli Lagerfeld. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Gula kápan er frá TopShop en töskuna frá Ted Baker …
Gula kápan er frá TopShop en töskuna frá Ted Baker keypti Helga Margrét þegar hún var 16. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Helga Margrét segist alltaf vera fín og það er hennar versta martröð að vera ekki nógu fín. Að hennar mati er miklu skemmtilegra að vera í of fínum fötum en ekki. Hún vitnar í skáldið Oscar Wilde þegar kemur að þessari lífsspeki en hann sagði að fólk gæti ekki klæðst of fínum fötum né menntað sig of mikið.

Helga Margrét á yfir 100 skópör.
Helga Margrét á yfir 100 skópör. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Innblásturinn sækir Helga Margrét til sjöunda og tíunda áratugs síðustu aldar. Stutt pils, skokkar, pelsar og skótíska frá þessum tíma heilla hana gríðarlega. Hreinu línurnar heilla hana mikið, litirnir og mynstrin. Hún hefur þetta hugfast þegar hún kaupir föt og segir klassísk snið og fallega liti ekki fara úr tísku.

Helga Margrét klæddist bleika síðkjólnum þegar hún hélt upp á …
Helga Margrét klæddist bleika síðkjólnum þegar hún hélt upp á 21 árs afmælið sitt. Hún heldur alltaf galaboð þegar hún afmælið eða Helgala eins og hún kallar það. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áttu þér uppáhaldsverslun á Íslandi?

„Vero Moda, Spútnik og Zara eru búðirnar sem ég kíki oftast í. Ég er mjög dugleg að kíkja í alls konar verslanir samt. Það er fátt skemmtilegra en að rölta í bænum með tebolla í ferðamáli og skoða allar búðir sem ég geng fram hjá.“

Skópörin fá að njóta sín.
Skópörin fá að njóta sín. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Helga Margrét verslar líka á netinu og viðurkennir að hafa verið allt of dugleg í því í kórónuveirufaraldrinum. „Sérstaklega í fyrra þegar maður hafði ekkert að gera í Covid. Þá eyddi ég allt of stórum hluta dagsins í að skoða Asos, svona verslunarmeðferð. En er búin að vera mjög dugleg að gera ekki of mikið á þessu ári.“

Kjóllinn er frá Vila, veskið frá Vero Moda. Helga Margrét …
Kjóllinn er frá Vila, veskið frá Vero Moda. Helga Margrét er órhædd við að klæðast sama litnum frá toppi til táar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skærbleikur varalitur og falleg spöng setja punktinn yfir i-ið þegar Helga Margrét gerir sig til.

„Mér finnst ég vera hálfnakin án þess að vera með varalit, finnst það vera meira eins og mikilvægur fylgihlutur frekar en snyrtivara. Síðan er falleg yfirhöfn það mikilvægasta. Maður getur verið í svo venjulegum fötum en síðan ferðu í síða gula kápu yfir og þá verður þú strax fínust. Síðast en ekki síst má ekki gleyma að sjálfstraust er besti fylgihluturinn. Það fer allt eftir því hvernig þú berð þig í flíkunum.“

Bleiku Love Moschino-töskuna gaf Helga Margrét sjálfri sér í jólagjöf. …
Bleiku Love Moschino-töskuna gaf Helga Margrét sjálfri sér í jólagjöf. Hún á gott safn af töskum og elskar til dæmis loðin veski. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hvað eru bestu kaup sem þú hefur gert?

„Bleika og svarta Ted Baker-taskan mín sem ég keypti 2014. Hún var mjög dýr fyrir 16 ára mig en hef notað hana stanslaust síðustu ár og ég get ekki ímyndað mér að hún hætti nokkurn tímann að vera uppáhaldsveskið mitt. Gæti ekki verið meira klassísk,“ segir Helga Margrét. Þar á eftir koma kápurnar sem hún á erfitt að gera upp á milli, enda gerir fólk ekki upp á milli barnanna sinna.

Helga Margrét hugsar um fötin sín og skóna eins og …
Helga Margrét hugsar um fötin sín og skóna eins og listaverk. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum þessa stundina?

„Fallega sumarkjóla og sokkabuxur sem eru ekki með neinum götum! Síðan vil ég meina að heimurinn væri betri staður ef allir væru meira í pallíettum og pastel-litum, helst þá bleiku og fjólubláu en það er bara kenning.“

Hvað er á óskalistanum fyrir sumarið?

„Það helsta er bara að fá mikla sól. Vil bara vera berleggja í fallegum sumarkjólum, en hingað til hefur veðrið ekki alveg boðið upp á það. Ég hef fulla trú á að júlí verði betri og þá vantar mig helst þann fullkomna lautarferðarkjól, er búin að vera að leita víða að honum,“ segir Helga Margrét sem er reyndar spennt fyrir haustinu og að fá vonandi að mæta í skólann. Ný föt fyrir skólann eru því á óskalistanum. Pils og jakki í stíl eru á óskalistanum. „Það væri draumur að ég gæti verslað endalaust hjá Chanel, Sister Jane og Ted Baker, en það er ekki svo gott núna.“

Spangir eru í miklu uppáhaldi.
Spangir eru í miklu uppáhaldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál