Tónlistarkonan og snyrtivörumógúllinn Selena Gomez veit hve mikilvægt það er að byrja daginn rétt, en hún deildi morgunrútínu sinni með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlinum TikTok á dögunum.
Gomez hefur vakið mikla athygli í snyrtivöruheiminum að undanförnu, eftir að hún gaf út snyrtivörulínuna Rare Beauty. Margar vörur úr línunni eru nú með mest seldu snyrtivörum heims og hafa hlotið mikið lof.
Gomez byrjar daginn á sturtu þar sem hún þvær hárið og setur í það hárvörur áður en hún greiðir það aftur í snúð. Hún setur á sig rakakrem, varamaska og líkamskrem. Að því loknu setur hún á sig varasalva frá snyrtivörumerki sínu, greiðir augabrúnirnar upp og klæðir sig.