Ágúst Eðvald til Norwich

Ágúst Hlynsson með treyju Norwich.
Ágúst Hlynsson með treyju Norwich. Ljósmynd/@totalfl

Ágúst Eðvald Hlynsson hinn 16 ára gamli leikmaður Breiðabliks skrifaði í dag undir samning við enska knattspyrnufélagið Norwich City.

Þetta kemur fram á twitter síðu umboðsskrifstofunnar Total football. Ágúst kom við sögu í fjórum leikjum Breiðabliks í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð og lék þrjá bikarleiki með því og í einum þeirra skoraði hann og varð þar með yngsti markaskorarinn í sögu Breiðabliks.

Ágúst Eðvald hefur leikið 15 leiki með U17 ára liðinu og hefur í þeim skorað 3 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert