KA og Magni mættust í A-deild Kjarnafæðismótsins í knattspyrnu í dag og svo fór að KA vann öruggan 5:1-stórsigur. Elfar Árni Aðalsteinsson gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk fyrir KA og Daníel Hafsteinsson eitt. Kristinn Þór Rósbergsson lagaði stöðuna fyrir Magna undir lokin.
Kjarnafæðismótið hófst í gær með leik Völsungs og Leiknis F. Svo fór að Völsungur hafði betur, 2:0, með mörkum frá Guðmundi Óla Steingrímssyni og Eyþóri Traustasyni.