Kristall Máni Ingason, ungur knattspyrnumaður úr Fjölni, er á leið til danska meistaraliðsins FC Kaupmannahafnar síðar í þessum mánuði.
Kristall verður 16 ára síðar í mánuðinum og mun í kjölfarið skrifa undir samning við danska félagið. Það er fotbolti.net sem greinir frá þessu, en Kristall hefur átt fast sæti í U17 ára landsliði Íslands og spilaði tíu leiki með liðinu á síðasta ári.
FC Kaupmannahöfn er sigursælasta knattspyrnufélag Danmerkur og hefur unnið danska meistaratitilinn 12 sinnum frá árinu 1993.