Bæta norðankonur við öðrum bikar?

Þór/KA og Stjarnan eigast við í dag.
Þór/KA og Stjarnan eigast við í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna í fótbolta fer fram í Boganum, Akureyri kl. 17:15 í dag. Íslandsmeistarar Þórs/KA mæta þá Stjörnunni. 

Þór/KA fór alls ekki vel af stað í keppninni og vann ekki í fyrstu þremur leikjum sínum. Sigrar á FH og ÍBV tryggðu hins vegar sætið í undanúrslitum og þar hafði liðið betur gegn Breiðabliki, 1:0. 

Stjarnan vann tvo leiki í riðlakeppninni, 1:0 á móti ÍBV og svo 4:1-sigur á andstæðingum dagsins. Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði tvö mörk í þeim leik og þær Ana Cate og Harpa Þorsteinsdóttir eitt mark hvor. Í undanúrslitum sigraði Stjarnan lið Vals, 2:1. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert