Finni til Grindavíkur

Óli Stefán Flóventsson er þjálfari Grindvíkinga.
Óli Stefán Flóventsson er þjálfari Grindvíkinga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Grindvíkingar hafa fengið til liðs við sig finnskan varnarmann, Elias Tamburini, fyrir baráttuna í seinni hluta Pepsi-deildar karla í knattspyrnu.

Tamburini er 23 ára gamall vinstri bakvörður og lék síðast með Hostert í efstu deild í Lúxemborg og áður með Klubi 04 frá Helsinki en hefur síðan leikið með bandarískum háskólaliðum og hefur æft með Grindavíkurliðinu undanfarnar vikur.

Hann er gjaldgengur með Grindvíkingum frá og með morgundeginum en þeir mæta Keflavík á heimavelli í 13. umferð á mánudagskvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert