Skoski miðjumaðurinn Robert Crawford, sem leikið hefur með FH-ingum undanfarin tvö ár, er genginn í raðir FK Mariehamn sem leikur í finnsku úrvalsdeildinni. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Crawford, sem er 25 ára gamall, samdi við Mariehamn til eins árs en liðið er frá Álandseyjum. Hann skoraði 5 mörk í 18 leikjum með FH-ingum í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð en alls lék hann 37 leiki með Hafnarfjarðarliðinu í Pepsi-deildinni og skoraði í þeim 6 mörk.
Mariehamn hafnaði í 10. sæti af 12 liðum í deildinni á síðustu leiktíð en varð finnskur meistari árið 2016 og bikarmeistari árið á undan.