Fylkir fær liðsstyrk frá Selfossi

Fylkiskonur eru í hörðum botnslag.
Fylkiskonur eru í hörðum botnslag. mbl.is/Árni Sæberg

Knattspyrnudeild Fylkis hefur gengið frá samningi við Brynhildi Brá Gunnlaugsdóttur. Hún kemur til félagsins frá Selfossi. Brynhildur er fædd árið 2000 og er uppalin í Hetti, en hún gekk í raðir Þór/KA fyrir tveimur árum, áður en hún fór í Selfoss. 

Brynhildur á ellefu leiki í efstu deild að baki. Tíu þeirra komu með Selfossi síðasta sumar og einn með Þór/KA sumarið 2017. Hún getur ekki leikið með Fylki gegn Selfossi í Mjólkurbikarnum í kvöld. 

Brynhildur á að baki einn landsleik fyrir U17 ára landsliðið. Fylkir er í níunda sæti Pepsi Max-deildarinnar með sjö stig, tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert