Fylkir vann sannfærandi 3:0-sigur á ÍBV í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í dag. Með sigrinum fór Fylkir upp fyrir FH og upp í fimmta sætið. ÍBV er í botnsætinu með aðeins fimm stig.
Fylkismenn voru mikið sterkari í fyrri hálfleik og Kolbeinn Aron Finnsson kom Fylki yfir á 12. mínútu með glæsilegu skoti upp í vinkilinn utan teigs. Fylkismenn hefðu hæglega getað skorað fyrr, en ÍBV náði sér engan veginn á strik fyrsta hálftímann.
Eyjamenn voru sterkari síðasta korterið í fyrri hálfleik, en þrátt fyrir það voru það Fylkismenn sem tvöfölduðu forskotið í blálok seinni hálfleiks þegar varnarmaðurinn Ásgeir Eyþórsson skoraði af stuttu færi eftir horn.
Eyjamenn byrjuðu seinni hálfleikinn af fínum krafti, en þeir náðu ekki að reyna mikið á Stefán Loga Magnússon í marki Fylkis. Það dró af ÍBV þegar leið á seinni hálfleikinn og voru gestirnir ekki líklegir til að skora.
Fylkismenn gátu leyft sér að slaka á og sköpuðu þeir ekki mikið af færum. ÍBV hefði getað minnkað muninn á 78. mínútu en Stefán Logi varði mjög vel frá varamanninum Benjamin Prah sem slapp einn í gegn.
Það voru hinsvegar heimamenn sem skoruðu þriðja mark leiksins. Eftir mistök í vörn ÍBV sendi Valdimar Þór Ingimundarson á Geoffrey Castillion sem skoraði af öryggi úr teignum. Lítið markvert gerðist eftir þriðja markið og öruggur sigur Fylkis varð staðreynd.