Knattspyrnukonan Vesna Elísa Smiljkovic er gengin til liðs við Fylki en þetta kemur fram á Facebook-síðu félagsins. Vesna, sem er 37 ára gömul, skrifar undir eins árs samning við Fylki en hún hefur spilað á Íslandi frá árinu 2005.
Vesna er fædd í Serbíu en er með íslenskt ríkisfang. Hún á að baki 214 leiki í efstu deild með Keflavík, Þór/KA, ÍBV og Val en í þessum leikjum hefur hún skorað 84 mörk. Hún lék einn leik með Val í efstu deild síðasta sumar, þegar hún var nýbyrjuð aftur eftir barnsburðarleyfi, en þá kom hún inn á sem varamaður gegn Fylki í Árbænum.
Þá hefur Vesna leikið 77 landsleiki fyrir Serbíu og var lengi fyrirliði landsliðsins.