Unnur samdi við Selfoss

Unnur Dóra Bergsdóttir í leik með Selfossi.
Unnur Dóra Bergsdóttir í leik með Selfossi. Ljósmynd/Guðmundur Karl
Sóknarmaðurinn Unnur Dóra Bergsdóttir skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss.
Unnur Dóra, sem er tvítug, er uppalin á Selfossi. Hún spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki 16 ára gömul í Pepsi-deildinni 2016 og hefur nú leikið 70 meistaraflokksleiki fyrir félagið og skorað í þeim 7 mörk.
Frá þessu segir í tilkynningu frá félaginu og þar ef haft eftir Alfreð Elíasi Jóhannssyni þjálfara liðsins: „Það er frábært að hafa Unni áfram hjá okkur. Hún er öflugur liðsmaður, komin með góða reynslu og er mikilvægur hlekkur í okkar leikmannahópi.“
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert