Önnur umferðin í PepsíMax deild karla í knattspyrnu hefst í kvöld á heimavelli KR í Frostaskjóli.
KR tekur á móti KA klukkan 18. KR vann Breiðablik í fyrstu umferð og KA gerði jafntefli gegn HK.
Þessi tvö lið mættust aldrei á KR-vellinum í fyrra því leikur þeirra þar var einn þeirra sem var aflýst þegar keppni var hætt í október. Þau gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum á Akureyri í júlímánuði.
Umferðin heldur áfram á morgun með þremur leikjum og lýkur með tveimur leikjum á sunnudaginn.