Jóhann ekki með í landsleikjunum

Jóhann Berg Guðmundsson var fyrirliði þegar Ísland mætti Rúmeníu í …
Jóhann Berg Guðmundsson var fyrirliði þegar Ísland mætti Rúmeníu í síðasta mánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóhann Berg Guðmundsson landsliðsmaður í knattspyrnu verður ekki með í landsleikjunum gegn Armeníu og Liechtenstein í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fram fara á Laugardalsvellinum 8. og 11. október.

Frá þessu er greint á 433.is og kemur fram að það hafi verið staðfest af KSÍ. Möguleiki sé á því að fleiri leikmenn heltist úr lestinni vegna meiðsla og greint verði frá því í fyrramálið en eins og mbl.is sagði frá í dag meiddist Jón Guðni Fjóluson í leik með Hammarby gegn Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Jóhann Berg lék með Burnley gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni í gær en hann kom þá inn á sem varamaður og spilaði síðasta hálftíma leiksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert