Fimm breytingar á landsliðshópnum

Elín Metta Jensen snýr aftur í íslenska landsliðshópinn.
Elín Metta Jensen snýr aftur í íslenska landsliðshópinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur valið þá 23 leikmenn sem munu taka þátt í tveimur leikjum í undankeppni HM 2023 síðar í mánuðinum.

Íslenska liðið mun þar mæta Tékklandi og Kýpur á heimavelli.

Fimm breytingar eru gerðar á landsliðshópnum frá því í síðasta landsleik gegn Hollandi í undankeppninni.

Berglind Rós Ágústsdóttir, Elín Metta Jensen, Hafrún Rakel Halldórsdóttir og Telma Ívarsdóttir koma inn í hópinn. Fimm leikmenn detta svo út úr honum, þær Andrea Rán Hauksdóttir, Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Diljá Ýr Zomers og Hlín Eiríksdóttir.

Áslaug Munda er að glíma við höfuðmeiðsli og gat því ekki tekið þátt að þessu sinni.

Markverðir:
Sandra Sigurðardóttir - Valur - 37 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Örebro - 3 leikir
Telma Ívarsdóttir - Breiðablik

Aðrir leikmenn
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Breiðablik - 3 leikir
Elísa Viðarsdóttir - Valur - 40 leikir
Guðný Árnadóttir - AC Milan - 11 leikir
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern München - 94 leikir, 6 mörk
Ingibjörg Sigurðardóttir - Vålerenga - 38 leikir
Guðrún Arnardóttir - Rosengård - 11 leikir
Sif Atladóttir - Kristianstad - 82 leikir
Hallbera Guðný Gísladóttir - AIK - 120 leikir, 3 mörk
Dagný Brynjarsdóttir - West Ham - 93 leikir, 30 mörk
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - Orlando Pride - 81 leikur, 11 mörk
Alexandra Jóhannsdóttir - Eintracht Frankfurt - 15 leikir, 2 mörk
Karitas Tómasdóttir - Breiðablik - 5 leikir
Berglind Rós Ágústsdóttir - Örebro - 3 leikir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayern München - 8 leikir, 3 mörk
Berglind Björg Þorvaldsdóttir - Hammarby - 53 leikir, 7 mörk
Elín Metta Jensen - Valur - 58 leikir, 16 mörk
Agla María Albertsdóttir - Breiðablik - 38 leikir, 3 mörk
Sveindís Jane Jónsdóttir - Kristianstad - 9 leikir, 2 mörk
Svava Rós Guðmundsdóttir - Bordeaux - 26 leikir, 1 mark
Amanda Jacobsen Andradóttir - Vålerenga - 1 leikur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert