Að taka við hlutverki Gylfa Þórs

Hákon Arnar Haraldsson hefur slegið í gegn á tímabilinu.
Hákon Arnar Haraldsson hefur slegið í gegn á tímabilinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon hefur mikla trú á knattspyrnu- og landsliðsmanninum Hákoni Arnari Haraldssyni en hann er samningsbundinn FC Köbenhavn í Danmörku.

Þetta kom fram í samtali hans við RÚV í gær en Hákon Arnar, sem er einungis 19 ára gamall, hefur leikið frábærlega í Danmörku á tímabilinu.

Hann verður að öllum líkindum í stóru hlutverki hjá íslenska landsliðinu í kvöld þegar liðið mætir Bosníu í fyrsta leik sínum í J-riðli undankeppni EM 2024 í Zenica í Bosníu.

„Hákon Arnar Haraldsson hefur verið frábær fyrir FC Köbenhavn og hann var auðvitað að skrifa undir langtíma samning við félagið á dögunum,“ sagði Hörður.

„Hann er mögulega að verða okkar skærasta stjarna, vonarstjarna, og hann er kannski aðeins að taka við því hlutverki sem Gylfi Þór Sigurðsson var í,“ bætti Hörður við í samtali við RÚV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert