Færeyski knattspyrnumaðurinn Gunnar Vatnhamar hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Víking úr Reykjavík.
Gunnar. sem er færeyskur landsliðsmaður, gekk til liðs við Víking fyrir tímabilið 2023 frá Víkingi í Götu og hefur verið lykilmaður hjá Íslands- og bikarmeisturunum síðan.
Skoraði hann meðal annars fyrsta mark Íslandsmótsins í ár.
Víkingur er í efsta sæti Bestu deildarinnar með 12 stig eftir fimm leiki. Liðið fær FH í heimsókn í toppslag helgarinnar.