Alexis Sánchez, verðandi leikmaður Manchester United, steig um borð í einkaþotu í London í dag. Áfangastaðurinn er Manchester þar sem hann er á leiðinni í læknisskoðun og að skrifa undir samning við rauða félag Manchester-borgar.
Sánchez birti myndband á Instagram þar sem hann labbar upp í vélina í mikilli snjókomu í London. Þangað er Henrikh Mkhitaryan einmitt mættur, til að ganga frá félagsskiptum sínum til Arsenal. Armeninn rakst á Marcus Rojo, leikmann Manchester United, í London, en Rojo er þar í stuttu fríi.