Veit ekki hvort Martial komi aftur

Anthony Martial í æfingaleik gegn San Jose Earthquakes í síðustu …
Anthony Martial í æfingaleik gegn San Jose Earthquakes í síðustu viku. AFP

Vangavelturnar um framtíð knattspyrnumannsins Anthony Martial eru ekki á undanhaldi eftir að José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, gaf það í skyn að franski sóknarmaðurinn ætti jafnvel ekki afturkvæmt.

Martial fékk leyfi til að bregða sér heim af æfingaferð félagsins í Bandaríkjunum til að vera viðstaddur fæðingu barns síns. Það eru hins vegar níu dagar síðan og hann hefur enn ekki skilað sér aftur til liðsfélaga sinna.

Blaðamenn spurðu Mourinho ítrekað út í Martial á blaðamannafundi í dag og vildi Portúgalinn í fyrstu engu svara en sagðist að lokum „ekki vita hvort hann kæmi aftur.“

Martial gekk í raðir Manchester United árið 2015 frá Mónakó og hef­ur hann skorað 24 mörk í 86 leikj­um í ensku úr­vals­deild­inni. Nú virðist sem hann gæti verið á förum frá félaginu en samband hans við Mourinho hefur þótt stirt undanfarin tvö tímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert