Milner vill titla

James Milner ætlar sér að vinna titla með Liverpool á …
James Milner ætlar sér að vinna titla með Liverpool á næstu árum. AFP

James Milner, miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, ætlar sér að vinna titil með liðinu á þessari leiktíð. Milner kom til félagsins árið 2015 frá Manchester City og hefur tekið þátt í þremur úrslitaleikjum með liðinu síðan þá. Hann segir að það sé kominn tími á að félagið skili titlum í hús.

„Þetta er Liverpool og væntingarnar eru háar. Þær eiga að vera það vegna þess að þetta er risa félag með mikla sögu. Fólk gerir þær kröfur að við vinnum hvern einasta leik sem við spilum. Ég hef verið hérna í þrjú ár og tekið þátt í þremur úrslitaleikjum.“

„Liðið er alltaf að bæta sig undir stjórn Jürgen Klopp og við getum unnið hvaða lið sem er í heiminum þegar að við erum á deginum okkar. Núna snýst þetta bara að koma sér yfir marklínuna, við erum svo nálægt henni. Ef við skilum titli í hús þá ættu fleiri að fylgja á eftir, þetta snýst allt um að búa til sigurhefð á nýjan leik,“ sagði Milner í samtali við Liverpool Echo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert