Pogba og Martial draga sig úr hópnum

Paul Pogba og Anthony Martial.
Paul Pogba og Anthony Martial. AFP

Þeir Paul Pogba og Anthony Martial, leikmenn Manchester United, hafa dregið sig út úr franska landsliðshópnum í knattspyrnu. Frakkar mæta Hollendingum í Þjóðadeildinni á föstudag og mæta svo Úrúgvæ í vináttulandsleik fjórum dögum síðar.

Pogba missti af grannaslag United og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær vegna meiðsla, en Martial spilaði allan leikinn. Hann hefur hins vegar dregið sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla á mjöðm. Martial var nú valinn í hópinn í fyrsta sinn eftir að hafa verið skilinn eftir heima fyrir HM í Rússlandi.

Alexandre Lacazette, framherji Arsenal, og Moussa Sissoko, miðjumaður Tottenham, hafa verið kallaðir inn í landsliðið í þeirra stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert