Welbeck fór í aðra aðgerð

Danny Welbeck.
Danny Welbeck. AFP

Danny Welbeck leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal þurfti að gangast undir aðra aðgerð á ökkla út af slæmu ökklabroti sem hann varð fyrir á dögunum. 

Báðar aðgerðirnar hafa gengið vel samkvæmt tilkynningum frá Arsenal og sá þáttur málsins gekk því eðlilega fyrir sig. Framundan er endurhæfing hjá leikmanninum til þess að endurheimta hreyfigetuna en Unai Emery, knattspyrnustjóri Arsenal, segir ótímabært að spá fyrir um hvort Welbeck verði meira með á þessu keppnistímabili. 

Welbeck hafði verið valinn í enska landsliðshópinn sem mætir Bandaríkjunum og Króatíu á næstu dögum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert