Neil Warnock, knattspyrnustjóri Arons Einars Gunnarssonar hjá Cardiff, hefur verið krafinn um skýringar vegna ummæla sinna um dómarann Andrew Madley um helgina.
Enska knattspyrnusambandið virðist óánægt með ummæli Warnock, eftir 3:2-tapið gegn Watford á laugardag, þegar hann kvartaði sáran yfir því að reynslulítill dómari skyldi látinn dæma leikinn. Andy Madley dæmdi þarna sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð, en hann dæmdi sinn fyrsta og eina leik í deildinni í mars á síðustu leiktíð.
„Ég skil ekki hvers vegna þeir létu Andre Marriner vera fjórða dómara og dómara sem ekki hafði dæmt allt tímabilið stjórna leiknum. Nema kannski að það megi vegna þess að við erum Cardiff og þá er allt í lagi að senda lærling á leikinn,“ sagði Warnock meðal annars við BBC, en hann var sérstaklega óánægður með að Troy Deeney slyppi við refsingu fyrir að tækla markvörðinn Neil Etheridge í leiknum.
Ekki er ljóst hvort Warnock á yfir höfði sér refsingu fyrir ummæli sín en hann hefur í það minnsta verið beðinn um að varpa frekara ljósi á þau.