Dembé­lé búinn að semja í Kína

Mousa Dembele í leik Tottenham gegn Arsenal.
Mousa Dembele í leik Tottenham gegn Arsenal. AFP

Belgíski landsliðsmaðurinn Mousa Dembé­lé hefur sagt skilið við Totten­ham og er genginn í raðir kínverska liðsins Guangzhou R&F.

Dembé­lé hefur spilað með Tottenham í sex og hálft ár en hann kom til liðsins frá Fulham árið 2012.

Dembéle, sem er 31 árs gamall, skrifaði undir þriggja ára samning við kínverska liðið sem greiðir Tottenham 11 milljónir punda sem jafngildir 1,7 milljörðum íslenskra króna. Hann lék samtals 248 leiki með Tottenham og á þessu tímabili hefur hann komið við sögu í tíu deildarleikjum með Lundúnaliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert