Segir Foden þann hæfileikaríkasta

Phil Foden
Phil Foden AFP

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að Phil Foden sé hæfileikaríkasti leikmaður sem hann hefur nokkurn tímann þjálfað. Guardiola hefur þjálfað menn á borð við Lionel Messi og Neymar. 

Foden er aðeins 19 ára gamall en hefur skorað sjö mörk í 36 leikjum fyrir City síðan hann lék sinn fyrsta leik fyrir tveimur árum síðan. „Hann er með allt til að verða einn af bestu leikmönnum heims," sagði Guardiola á blaðamannafundi í dag. 

„Phil er sá hæfileikaríkasti sem ég hef séð sem stjóri. Eina vandamálið er að ég set hann stundum ekki í byrjunarliðið. Það breytist í framtíðinni," sagði Guardiola, áður en hann bætti við að hann byggist ekki við að félagið myndi kaupa fleiri leikmenn í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert