De Gea byrjar á Old Trafford — Salah ekki með

David de Gea byrjar.
David de Gea byrjar. AFP

David de Gea byrjar í marki Manchester United gegn Liverpool á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en talið var að hann yrði ekki með eftir að hafa meiðst með spænska landsliðinu í vikunni.

Þá snýr Alisson aftur í mark Liverpool eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í nokkrar vikur en Mohamed Salah er ekki í leikmannahópi Liverpool eftir að hafa meiðst í síðasta leik gegn Leicester.

Þá snýr Aaron Wan-Bissaka aftur í byrjunarlið United og Anthony Martial er á bekknum eftir að hafa einnig verið frá.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert