Jákvæðar fréttir af Salah

Það var létt yfir þeim Mohamed Salah og Dejan Lovren …
Það var létt yfir þeim Mohamed Salah og Dejan Lovren á æfingu Liverpool í morgun. AFP

Mohamed Salah, sóknarmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, tók virkan þátt í æfingu liðsins í dag en það er Liverpool Echo sem greinir frá þessu. Salah var ekki með Liverpool um helgina þegar liðið gerði 1:1-jafntefli við Manchester United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni.

Salah meiddist á ökkla í 2:1-sigri Liverpool gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni 5. október síðastliðinn á Anfield. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, greindi frá því eftir leikinn gegn United að Salah gæti mögulega spilað með liðinu gegn Genk í Belgíu í Meistaradeildinni á morgun.

Það er enn þá óvíst hvort Salah geti byrjað á morgun en hann ætti að geta tekið einhvern þátt í leiknum þar sem hann tók virkan þátt í æfingu liðsins í dag. Varnarmennirnir Joel Matip og Trent Alexander-Arnold voru hins vegar hvergi sjáanlegir á æfingunni og gætu þeir því misst af leiknum mikilvæga í Belgíu á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert