Vardy er markahæstur

Jamie Vardy fagnar marki sínu gegn Arsenal.
Jamie Vardy fagnar marki sínu gegn Arsenal. AFP

Jamie Vardy er markahæsti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en hann skoraði fyrra mark Leicester í 2:0 sigri gegn Arsenal í gærkvöld.

Vardy, sem hefur leikið Arsenal grátt í gegnum árin, hefur skorað 11 mörk, einu meira en hinn ungi Tammy Abraham í liði Chelsea.

Markahæstu leikmenn:

11 - Jamie Vardy, Leicester
10 - Tammy Abraham, Chelsea
 9 - Sergio Agüero, Manchester City
 8 - Pierre-Emerick Aubameyang, Arsenal
 7 - Raheem Sterling, Manchester City
 7 - Sadio Mané, Liverpool

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert