Mörkin á Old Trafford (myndskeið)

Manchester United fór upp um sjö sæti og situr nú í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 3:1 sigur gegn Brighton á Old Trafford í gær.

Andreas Pereira kom United í 1:0 og Davy Propper tvöfaldaði forystu Manchester-liðsins þegar hann varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Lewis Dunk gaf Brighton von þegar hann minnkaði muninn en Marcus Rashford var ekki lengi að slökkva í þeim vonum þegar hann skoraði þriðja mark United.

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá mörkin og helstu atvikin úr leiknum.

Marcus Rashford fagnar marki sínu á Old Trafford í gær.
Marcus Rashford fagnar marki sínu á Old Trafford í gær. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert