Dramatíkin var ótrúleg þegar Everton og Newcastle mættust á Goodison Park í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Everton virtist vera að sigla heim afar öruggum sigri eftir að hafa komist í 2:0 með mörkum frá Moise Kean og Dominic Calvert-Lewin.
Það var komið fram á þriðju mínútu í uppbótartíma þegar Florian Lejeune minnkaði muninn fyrir Newcastle og hann náði að skora aftur áður en flautað var af, 2:2. Liðin eru í 12. og 13. sæti, bæði með 30 stig.
Gylfi Þór Sigurðsson lék ekki með Everton vegna meiðsla.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir neðan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.