Liverpool er komið með 19 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 2:0-útisigur á West Ham í kvöld.
Liverpool skapaði sér lítið af færum framan af leik, en Divock Origi náði í vítaspyrnu eftir rúmlega hálftíma leik. Mo Salah fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi og var staðan í hálfleik 1:0.
West Ham fékk hornspyrnu snemma í seinni hálfleik, en hún fór ekki betur en svo að Liverpool fór í skyndisókn og Mo Salah sendi Alex Oxlade-Chamberlain einan í gegn og hann skoraði af öryggi.
Bæði lið fengu fín tækifæri til að skora eftir það, en Lukasz Fabianski í marki West Ham og Alisson í marki Liverpool vörðu báðir vel og urðu mörkin því aðeins tvö. West Ham er í 17. sæti með 23 stig, eins og Bournemouth, sem er í fallsæti.
West Ham | 0:2 | Liverpool | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Liverpool fær hornspyrnu | ||||
Augnablik — sæki gögn... |