Chelsea vann afar mikilvægan sigur á Tottenham, 2:1, í fyrsta leik 27. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Liðin eru í harðri baráttu um meistaradeildarsæti en eftir sigurinn hefur Chelsea 44 stig í 4. sætinu á meðan Tottenham hefur 40 stig í 5. sæti.
Snemma í seinni hálfleik braut Giovani Lo Celso, leikmaður Tottenham, illa á Cesar Azpilicueta. Þrátt fyrir skoðun hjá myndbandsdómurum fékk Lo Celso ekki einu sinni spjald.
Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.