Margrét Lára Viðarsdóttir og Magnús Már Einarsson ræddu við Tómas Þór Þórðarson í Vellinum um frammistöðuna hjá Domick Calvert-Lewin, framherja Everton, í leik liðsins gegn Manchester United.
Calvert-Lewin hefur skorað 13 í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni en 10 þeirra hafa komið eftir að Ítalinn Carlo Ancelotti tók við stjórnartaumunum hjá Everton.
„Það er gaman að sjá að Everton eigi loksins enskan framherja sem skorar mikið af mörkum,“ sagði Margrét Lára í Vellinum.
„Þetta mark er lýsandi fyrir það að það gengur allt upp. Núna er allt inni,“ sagði Magnús Már Einarsson, sérfræðingur Vallarins.
Innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska fótboltanum í samvinnu við Símann sport.