Liðsfélagi Gylfa fær langtímasamning

Dominic Calvert-Lewin verður hjá Everton næstu fimm árin.
Dominic Calvert-Lewin verður hjá Everton næstu fimm árin. AFP

Knattspyrnumaðurinn Dominic Calvert-Lewin skrifaði í dag undir nýjan fimm ára samning við Everton. Hinn 22 ára Calvert-Lewin hefur átt gott tímabil og skorað 15 mörk í 31 leik. 

Framherjinn hefur verið í byrjunarliði Everton í öllum tíu leikjum liðsins síðan Carlo Ancelotti tók við af Marco Silva sem knattspyrnustjóri. 

Calvert-Lewin er annar ungi leikmaður félagsins sem framlengir samning sinn um fimm ár í vikunni en Mason Holgate gerði slíkt hið sama á þriðjudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert