Tvö félög í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, Newcastle og Norwich, hafa ákveðið að nýta sér stuðning breskra stjórnvalda við atvinnulífið og láta hið opinbera greiða starfsfólki sínu hluta launa sinna af almannafé.
Þetta hefur þegar kallað á sterk viðbrögð í bresku þjóðfélagi og meðal þeirra sem hafa gagnrýnt félögin er lögfræðingurinn Julian Knight sem starfar fyrir menningarmálaráðuneytið. „Þetta stendur í manni og opinberar hið siðlausa tómarúm sem viðgengst í enska fótboltanum þar sem fjármálin eru brjálæðisleg," sagði Knight, samkvæmt fréttastofu Reuters.
Það sem fer fyrir brjóstið á mörgum er að á meðan félögin leita eftir stuðningi úr almannasjóðum eru leikmenn liðanna í ensku úrvalsdeildinni á himinháum launum.
Tottenham hefur farið inn á svipaðar brautir með því að lækka 550 manns úr starfsliði sínu um 20 prósent í launum.
Á meðan hafa engir samningar náðst á milli félaganna og Samtaka atvinnuknattspyrnumanna varðandi mögulega launalækkun leikmannanna.
Þessum málum er öðruvísi farið víða annars staðar og meðal annars skar Katalóníustórveldið Barcelona laun allra leikmanna sinna í öllum íþróttagreinum niður um 70 prósent til að annað starfsfólk félagsins héldi fullum launum á meðan fótboltinn liggur niðri vegna kórónuveirunnar.