Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu og leikmaður Burnley í ensku úrvalsdeildinni, byrjar á varamannabekk liðsins sem heimsækir West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag klukkan 17.
Jóhann Berg er að jafna sig á meiðslum en hann kom inn á sem varamaður í uppbótartíma fyrir Eric Pieters þegar Burnley fékk Sheffield United í heimsókn í síðustu umferð úrvalsdeildarinnar, þann 5. júlí síðastliðinn.
Jóhann Berg hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli á tímabilinu en hann hefur aðeins byrjað fjóra leiki í deildinni og fjórum sinnum hefur hann komið inn á sem varamaður. Burnley er í tíunda sæti deildarinnar með 46 stig.