Harry Kane hefur gert þetta áður (myndskeið)

„Hann hefur gert þetta áður, Harry Kane, hann sækir þessa vítaspyrnu að mínu mati,“ sagði Bjarni Þór Viðarsson í spjalli við þá Tómas Þór Þórðarson og Gylfa Einarsson í Vellinum á Símanum Sport. Þeir voru að ræða 2:1-sigur Tottenham á Brighton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Heimamenn tóku forystuna með vítaspyrnunni sem Kane fiskaði en hann skoraði úr henni sjálfur. Það var svo Gareth Bale sem skoraði sigurmarkið eftir að gestirnir höfðu jafnað metin en aftur þurfti myndbandsdómgæslan að skoða málin. Leikmaður Brighton, Solly March, virðist brjóta af sér í aðdraganda marksins.

„Í hvert einasta sinn, sem dómarar hafa verið sendir í skjáinn á þessu tímabili, þá hafa þeir breytt eigin dómi,“ sagði Tómas Þór en þetta var í fyrsta sinn sem svo var ekki. Atvikið og umræðurnar má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert