Sýnt beint frá Turf Moor á mbl.is

Burnley tekur á móti WBA í dag.
Burnley tekur á móti WBA í dag. AFP

Burnley og West Bromwich Albion mætast í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Turf Moor í Burnley klukkan 15 og hægt er að sjá leikinn í beinni útsendingu hér á mbl.is.

Útsendingin hefst kl. 14.30 með upphitun fyrir leikinn á Símanum Sport og er á sérvefnum Enski boltinn.

Burnley er í 15. sæti deildarinnar með 27 stig en WBA er nítjánda og næstneðst í deildinni með 13 stig.

Jóhann Berg Guðmundsson er ekki í leikmannahópi Burnley í dag vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert