Hélt hreinu annan leikinn í röð

Jökull Andrésson er að spila vel með Exeter.
Jökull Andrésson er að spila vel með Exeter. Ljósmynd/Exeter

Exeter City vann sannfærandi 4:0-sigur á Leyton Orient í D-deild Englands í fótbolta í dag.

Jökull Andrésson stóð á milli stanganna hjá Exeter og hélt hreinu annan leikinn í röð, en liðið gerði markalaust jafntefli gegn Walsall í síðasta leik.

Jökull er samningsbundinn B-deildarfélaginu Reading en hann er að láni hjá Exeter út leiktíðina. Jökull lék fyrst sex deildarleiki fyrir Exeter snemma á leiktíðinni en var svo lánaður til Morecambe í sömu deild þar sem hann lék tvo leiki, áður en hann fór síðan aftur til Exeter.

Hefur hann leikið afar vel með Exeter og var valinn besti leikmaður liðsins af stuðningsmönnum í febrúarmánuði. Exeter er í sjöunda sæti deildarinnar með 50 stig og í mikilli baráttu um sæti í C-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert