Jóhann Berg byrjar gegn Arsenal

Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley.
Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley. AFP

Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley er liðið mætir Arsenal á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta klukkan 14.

Jóhann hefur verið í byrjunarliðinu í öllum fimm leikjum Burnley á leiktíðinni og lagt upp eitt mark.

Burnley og Arsenal hafa farið illa af stað á leiktíðinni. Burnley er með eitt stig í nítjánda sæti og Arsenal með þrjú stig í sautjánda sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert