Mörkin: Reyndist gömlu félögunum erfiður

Staða Burnley í fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta versnaði er liðið fékk Aston Villa í heimsókn og tapði 1:3 í gær.

Danny Ings, sem eitt sinn lék með Burnley, skoraði fyrsta markið fyrir Villa og þeir Emiliano Buendía og Ollie Watkins bættu við mörkum áður en Maxwel Conet minnkaði muninn í uppbótartíma.

Burnley er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti en Everton, sem er í síðasta fallsætinu, á tvo leiki til góða.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert