Mörkin: Glæsileg mörk í norðrinu

Newcastle vann 2:0-sigur gegn nýliðum Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Þrátt fyrir mikla yfirburði var Newcastle-liðið lengi að brjóta ísinn kom fyrsta markið ekki fyrr en um miðjan seinni hálfleik. Varnarmaðurinn Fabian Schar negldi boltanum þá glæsilega í netið af löngu færi.

Það var svo Callum Wilson sem skoraði seinna mark Newcastle í leiknum með afar huggulegri afgreiðslu.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.

Leikur Newcastle og Nottingham Forest var sýndur beint á Síminn Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert