Senda frá sér yfirlýsingu vegna Greenwoods

Mason Greenwood þarf ekki að mæta fyrir dómara í nóvember …
Mason Greenwood þarf ekki að mæta fyrir dómara í nóvember eins og til stóð. AFP/Lindsey Parnaby

Íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood uppfærði Instagram-síðu sína á dögunum.

Greenwood, sem er 21 árs gamall, þarf ekki að mæta fyrir dómara í nóvember á þessu ári eins og til stóð eftir að hann var ákærður fyrir líkamsárás, tilraun til nauðgunar og líflátshótanir í garð fyrrverandi kærustu sinnar.

Málið var látið niður falla, meðal annars vegna þess, að lykilvitni ákváðu að draga framburð sinn til baka.

Greenwood uppfærði Instagram-síðu sína eins og áður sagði, eftir að málið var fellt niður, og þar sagðist hann vera bæði leikmaður Manchester United og á styrktarsamning hjá Nike.

„Mason Greenwood er ekki íþróttamaður hjá Nike,“ sagði meðal annars í tilkynningu íþróttavöruframleiðandans en framtíð leikmannsins hjá United er í mikilli óvissu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert