Ekki fundinn eftir allt saman?

Christian Atsu virðist enn ófundinn.
Christian Atsu virðist enn ófundinn. AFP

Christian Atsu, fyrr­ver­andi leikmaður ensku knatt­spyrnuliðanna Newcastle, Evert­on og Chel­sea og nú­ver­andi leikmaður Hatayspor í Tyrklandi, er enn ófundinn í rústum byggingar sem hrundi þegar jarðskjálftar riðu yfir Tyrkland og Sýrland í byrjun vikunnar.

Mu­stafa Özat, vara­for­seti Hatayspor, sagði við Radyo Gol í gær að Atsu hafi fundist á lífi í rústunum, en læknir félagsins segir hann ekki hafa farið með rétt mál. 

„Okkur var sagt að Atsu væri á Dortyol-spítalanum. Við fórum þangað að leita en fundum hann hvergi. Við verðum að sætta okkur við að fréttirnar um að hann hafi verið fundinn séu rangar,“ sagði Gurbey Kahveci, læknir Hatayspor, við Hurriyet Turkey í dag.

Atsu gekk ung­ur að árum til liðs við Chel­sea og var lánaður til Evert­on tíma­bilið 2014-2015 og til Newcastle tíma­bilið 2016-2017. Hjálpaði hann Newcastle að kom­ast upp í ensku úr­vals­deild­ina eft­ir eitt tíma­bil í B-deild­inni og spilaði síðan með fé­lag­inu áfram til árs­ins 2021 þegar hann fór til Sádi-Ar­ab­íu, og þaðan til Tyrk­lands síðasta sum­ar. Atsu hef­ur leikið 65 lands­leiki fyr­ir Gana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert