Vettel fljótastur á lokaæfingunni

Sebastian Vettel á Ferrari ók hraðast á lokaæfingunni fyrir tímatökuna í Singapúr. Næst hraðast fór liðsfélagi hans Kimi Räikkönen og þriðja besta hringinn átti Lewis Hamilton á Mercedes.

Rúmlega 0,3 sekúndum munaði á Ferraribílunum og Hamilton var 0,5 sekúndum lengur í förum en Vettel.

Valtteri Bottas á Mercedes átti fjórða besta hringinn og var aðeins 45 þúsundustu úr sekúndu hægari en liðsfélagi hans Hamilton.

Daniel Ricciardo og Max Verstappen á Red Bull urðu í fimmta og sjötta sæti en voru 1,1 og 1,2 sekúndum lengur með hringinn en Vettel. Í sætum sjö ti ltíu urðu - í þessari röð - Romain Grosjean á Haas, Esteban Ocon og Sergio Perez á Force India og Fernando Alonso á McLaren.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert