Jafntefli gegn Svíum í annarri tilraun

Íslenska U19 ára landslið kvenna á Spáni.
Íslenska U19 ára landslið kvenna á Spáni. Ljósmynd/KSÍ

U19 ára landslið kvenna í knattspyrnu gerði 1:1 jafntefli við Svíþjóð er það lék sinn síðasta leik á æfingamóti á La Manga á Spáni.

Leiknum lauk með 1:1 jafntefli en Dröfn Einarsdóttir skoraði mark Íslendinga á 68. mínútu.

Ísland hafði áður tapaða 2:1-gegn Ítalíu í fyrsta leiknum þar sem Guðrún Gyða Haralz skoraði. Andstæðingurinn í öðrum leiknum átti svo að vera Skotland en þær skosku voru veðurtepptar og mættust því Ísland og Svíþjóð á laugardaginn var og svo aftur í dag. Svíþjóð vann fyrri leikinn 2:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert